Hann vinnufélagi minn með frumlega matarsmekkinn kom með nýtt í hádeginu í dag:
ein krukka Ora lúxussíld (sem þýðir síldarbitar í einhverju ljósgulbleiku sósujukki)
ein dós Ora grænar baunir
einn banani, skorinn í bita
Allt sett saman á disk og borðað með gaffli.