Ekki er gott ástandið í veitingageiranum þessa stundina, skilst manni, hvert veitingahúsið af öðru að leggja upp laupana þessa dagana - Sommelier, Skólabrú, Metz, Pasta Basta, og einhver tvö eða þrjú önnur að ég held, man ekki í svipinn hver það eru. Ekki veit ég hvort fólk fer eitthvað minna út að borða en áður eða hvort samkeppnin er bara svona hörð. En það hefur svosem verið nóg að gera á þeim stöðum sem ég hef farið á núna eftir áramótin. Ég sé nú mest eftir Sommelier af þessum stöðum; var reyndar ekkert yfir mig hrifin þegar ég borðaði þar seinast en það var alltaf viðkunnanlegur staður. Það er að segja innandyra. Staðsetningin var vond en hún virðist þó ekki há grönnum þeirra í Austur-Indíafélaginu neitt.
27.1.04
- Hann vinnufélagi minn með frumlega matarsmekkinn k...
- create your own visited country map or write abo...
- Mér finnst aldrei meiri þörf á litum til að lífga ...
- Donny Osmond er í þættinum hjá Parkinson á BBC Pri...
- Ég þurfti að fara inn í Kringlu áðan, sem ég reyni...
- Ég sagði ellefu dyr áðan. Ég gleymdi víst tvennum ...
- Ég sit og er að vesenast með teikningu af íbúðinni...
- Beggi, vantar þig ekki svona konu? En svo er hér ...
- Ég var í afmælisveislu áðan - ég ætlaði að fara að...
- Þegar ég skrifaði færsluna hér á undan vissi ég ek...