Jæja, þá eru jólin búin hjá mér ... eða þannig. Jólablaðið farið í prentun og nú þarf að fara að snúa sér að janúarblaðinu. Aðhald á öllum sviðum. Fitusnautt og budduvænt. Svolítið skrítið að þurfa að skipta svona um gír allt í einu og svo þarf ég að fara að byrja á mínum eigin jólaundirbúningi líka. Allavega bakstrinum.
Þorláksmessuskinkan getur aftur á móti beðið fram yfir helgi, en ef einhver veit af svínslærum á tilboði má láta mig vita. Mig vantar stórt læri, en eins og kom glöggt í ljós í fyrra eftir miklar pælingar hjá okkur efnafræðistúdentinum, þá er 13 kg algjört hámark.