Tvöfalt merkisafmæli í dag.
Mamma er 75 ára. Og Boltastelpan er ... níu ára í annað skipti (að eigin ósk, eins og ég útskýrði í gær), en allavega eru í dag tíu ár síðan hún fæddist. Þannig að segja má að langamma hennar hafi fengið hana í 65 ára afmælisgjöf.
Til hamingju, báðar tvær.