Sauðargæran er hjá mér í vinnunni smástund, drekkur kakó, étur Kit-Kat sem honum var gefið, blaðrar stanslaust og er alsæll. Ekki síst eftir að hann rakst á Söguatlasplakatið sem er hér á skrifstofunni. Hann er búinn að vera í tíu mínútur að benda á mynd af vígi Snorra Sturlusonar og segja ,,Lína langsokk!"