Nú er nýi ísskápurinn kominn á sinn stað og nýtur sín vel og þá er komið upp vandamál, að vísu vel leysanlegt: Það er ekkert frystihólf í honum (ég vildi það ekki) og það þýðir að það sem var í frystihólfinu á gamla skápnum þurfti að fara í frystiskápinn, sem eiginlega var fullur fyrir og er núna troðfullur. Þannig að við þurfum að vera dugleg að borða úr honum á næstunni - ég stakk upp á því við efnafræðistúdentinn að ég færi að elda svona ,,potluck"-máltíðir, teygði mig blindandi inn í skápinn, tæki eitthvað út og eldaði það. Hann hafnaði því samstundis, minnugur þess að í frystiskápnum er til dæmis poki með grísalöppum og eitthvað fleira sem hann kann ekki alveg að meta.
Svo verð ég að vera dugleg að bjóða gestum í mat því þarna eru bæði stórar steikur og eitt og annað sem - tja, sem enginn hér á heimilinu vill nema ég en valdir gestir mundu kunna að meta. Ég byrjaði reyndar strax í gærkvöldi þegar Gestgjafinn hélt vinnufund hér heima, bauð upp á tapasrétti og notaði þá meðal annars smokkfisk, steinbítskinnar, kjúklingavængi og okra úr frystiskápnum.
Og svo eru það jólin, sem eru að byrja. Það er að segja, jólablað Gestgjafans er í undirbúningi og ég þarf helst að ljúka við minn hluta fyrir 4. nóvember. Sem nálgast óðfluga.
Æ, æ, aumingja ég.