Ég get ímyndað mér eitt og annað skemmtilegra en að vakna allt of snemma með dúndrandi hausverk (nei, ég var ekki að skemmta mér í gær), geta ekki sofnað aftur, og fara svo í tannhreinsun og liggja bakk í tannlæknastól og þola pyntingar. Enn með dúndrandi hausverk.
Ég er að fara að elda einhverja fimm eða sex rétti fyrir myndatöku. Þetta verður ekki góður dagur.