Stöð 2 er alltaf að leita að Sólveigu Pétursdóttur. Ég hefði nú getað upplýst þá um að hún var að skoða í búðarglugga á Klapparstígnum um fjögurleytið í gær. Ég gat ekki betur séð en Skeljungsforstjórinn væri með en hann var með dökk sólgleraugu þrátt fyrir sólarleysið. Sólveig var hins vegar ekki í felubúningi svo að Stöð 2 hefði átt að geta fundið hana þess vegna.