Ég sé að ég fæ mun minna spam þessa dagana en venjulega. Helst að það sé verið að bjóða mér eitthvað af Viagra (sem mér skilst að sé að bjarga fjölda dýrategunda í útrýmingarhættu af því að það er ódýrara en öll töfralyfin sem unnin eru úr hjartarhornum og bjarnargalli og guðmávitahverju). Getur verið að allir spammararnir hafi fengið veirur í tölvurnar sínar og þær séu í sultu svo þeir geti ekkert spammað? Nei, það væri of gott til að vera satt.
Fyrst ég minnist á sultu: Sér einhver eitthvað að því að tala um sultur? Sumir prófarkalesararnir hérna (afbragðskonur en ég er bara ekki alltaf sammála þeim) segja að orðið sulta sé ekki til í fleirtölu. En ég sé að meira að segja hefur verið talað um sultur í Íslensku máli. Ekki sé ég neitt að því að nota orðið í fleirtölu og enginn sem ég hef spurt. Svo var ég að lesa þetta hjá Sverri Páli á dögunum: Þessar vangaveltur eru meðal annars vegna þess að ég var að velta því fyrir mér hvenær við gefum grænt ljós á breytingar. Hvenær viðurkennum við nýja fleirtölu orðsins keppni? Hvenær viðurkennum við að orðið verð hafi öðlast mjög nauðsynlega fleirtölu?
Áhugaverð pæling.