Í framhaldi af teiknimyndasöguumræðu hjá Stefáni, Erlingi og víðar náði ég í gamlan Vísi sem ég á uppi í hillu hjá mér og fannst reyndar inni í vegg þegar ég stóð í framkvæmdum fyrir nokkrum árum (og var með því saklausara sem hefur fundist í veggjum í þessu gamla sprútt- og dópsalabæli). Blaðið er reyndar frá 23. janúar 1973 og það er líklega ástæðan til þess að það hefur geymst; aðalfyrirsögnin á forsíðunni er Vestmannaeyingar urðu að yfirgefa heimabæinn.
Þegar ég var búin að kanna teiknimyndasögurnar fletti ég upp á Vísir spyr á bls. 2. Spurning dagsins er Telduð þér æskilegt að mörgum skemmtistöðum yrði safnað saman á einn stað eða í eina götu? Dálítið skemmtilegt að hafa þetta í huga þegar maður skoðar Landakort drykkjumannsins sem var í Fókusi í dag. Það liggur við að þetta sé einmitt það sem hefur gerst á þessum þrjátíu árum.
Þeir sem spurðir eru (einn þeirra er reyndar fyrrverandi mágur minn) sýnist sitt hverjum. Lögregluþjónn segir: ,,Það mundi áreiðanlega auðvelda löggæzluna, því að fólk rápar mikið á milli staða og ekur jafnvel drukkið á milli vínveitingahúsanna." (Hmm, ekki hefur nú samþjöppun skemmtistaða dugað alveg til að draga úr ölvunarakstri eins og dæmin sanna.) Og bóndi norðan af Sléttu segir: ,,... ég skemmti mér prýðilega í Reykjavík eins og hún er. En hér er þröngt að dansa fyrir bónda að norðan."