Sá merki atburður gerðist í gærkvöldi að efnafræðistúdentinn borðaði ávaxtaböku með kvöldkaffinu. Rabarbara- og nektarínuböku, nánar til tekið. Ekki minnist ég þess að hann hafi áður fengist til að láta slíkt góðgæti ofan í sig. Það liggur nú við að þetta sé tilefni til þess að ég skrifi niður uppskriftina; hún kemur kannski hér á eftir.