(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

25.2.03

Ég á afmæli í dag ...

Nei, auðvitað ekki. En það eru svo margir búnir að óska mér til hamingju með afmælið að ég fer að halda það. Bara af því að ég kom með nokkrar tertur í kaffitímanum. Og örugglega nokkrir búnir að bölva mér í hljóði líka af því að ég hef eyðilagt kolvetnakúrinn eða aðhaldið eða eitthvað hjá þeim. En ég segi nú bara eins og McDonalds: þið vitið hvað þetta er óhollt, ég er ekkert að þvinga ykkur til að borða þetta.

Auk þess eru terturnar mínar girnilegri en einhverjir hamborgarar.

Ég veit svosem ekki hvað ég ætti að gera við þessar tertur (sem ég er að baka fyrir myndatökur) annað en fóðra vinnufélagana á þeim. Fara með þær heim og gúffa þeim í mig alein? Þá mundi ég hætta að komast upp stigann innan fárra mánaða. Gefa efnafræðistúdentinum þær? Hann er lítið fyrir tertur. Gefa Sauðargærunni og snobbkettinum þær? Ja, þeir yrðu fljótir að afgreiða þær, en ... Nei, þetta er ágætt eins og það er. Og gott að hafa stóran smakkara- og álitsgjafahóp.

|