Ég rakst á lista Michaels Billington, gagnrýnanda The Guardian, um bestu og verstu verk ársins 2002 á fjölunum í London. Þar kom Sniglaveislan við sögu ...
Í Guardian fann ég líka ,,a calendar of party globetrotting", lista yfir gleðisamkomur ársins 2003 um alla heimsbyggðina. Teiti ágústmánaðar er ,,Peoples Feast, Westmann Islands, Iceland". Einhverjar staðreyndir eru ekki alveg á hreinu, þarna er talað um ,,the islanders who endure almost constant darkness and average temperatures of -20C over the winter" og ,,great music ... hailing as it does mainly from Iceland, Greenland and the Faroes" - efast nú um að það sé spilað mikið grænlenskt þarna en kannski Brandur Enni, Týr eða aðrir Færeyingar hafi verið á ferðinni, ég hef ekkert verið að fylgjast með því.
Persónulega langar mig miklu meira á gleði septembermánaðar, sem er Galway Oyster Feast á Írlandi, ,,Ireland's longest-running and best gourmet extravaganza", þar sem hægt er að rekja sig eftir The Oyster Pub Trail - fríar ostrur með bjórnum á 30 pöbbum út um allan bæinn. Pint af bjór og nokkrar ostrur á hverri krá, en maður má taka þrjá daga í að klára ostruslóðina.
Fyrst ég minntist á Brand Enni, þá er hér frétt fyrir aðdáendur hans af Føroyska tónleikaportalnum: ,,Eisini Ísland fær gleði av Brandi Enni, tí í februar mánaði verður stakfløga givin út haryviri, og Brandur fer eisini at spæla á Broadway í Reykjavík. Á íslendsku stakfløguni verður sangurin »Still Friends«, sum er ein duett saman við íslendsku Jóhannu Guðrún."
,,Keyp ein bita af Norðurlondum" auglýsir Kaupþing í Færeyjum.