Eldfjallið er í pössun hjá efnafræðistúdentinum í dag. Ég talaði við hana áðan og fékk að heyra að hann hefði barið hana í plokkfisk, kallað hana öllum illum nöfnum, læst hana inni, neitað að gefa henni að borða, bannað henni að horfa á sjónvarpið eða fara í tölvuleiki, en fyrir utan þetta væri hann bara alveg ágætur. Samkomulag þeirra frændsystkinanna er sem sagt með hefðbundnum hætti.