Þeir sem ætla að bjóða upp á alvöru panettone um jólin ættu að flýta sér - Heilsuhúsið fékk ekki nema hluta af pöntuninni sinni (bara 500 gramma kökurnar, engar stórar) og þær eru að renna hratt út. Því miður er heldur ekki boðið upp á þær í dósum í ár - allir mínir stærstu og bestu kökubaukar eru upprunalega panettonedósir.