Hausinn á E.T. er kominn í salt. Hann reyndist ekki alveg jafnplássfrekur og ég hafði haldið, það var alveg hægt að koma dálitlum pækli í leirkerið með honum. Efnafræðistúdentinn kom inn í eldhús þegar ég var að sjóða pækilinn, fannst kryddlyktin góð en leit svo ofan í pottinn og tautaði ,,That's evil". Svo lagðist hann aftur upp í sófa til að stúdera línulega algebru.