Af því að það var hringt í mig áðan og ég spurð um lútfisk, eða reyndar öllu heldur ertestuing með lútfiski, þá fór ég að grúska og fann uppskrift að lútfisksoufflé. En það verður ekki í jólamatinn hjá mér.
Efnafræðistúdentinn er í sínu fyrsta háskólaprófi. Nú bíð ég eftir að vita hvort hann þarf að fá ,,comfort food" í kvöldmatinn.
Hefur virkilega enginn neitt til málanna að leggja varðandi pælingar mínar um breytingar á póstlistanum? Bara smella á ,,comment" og tjá sig ...