Einhver Mr. Wang er greinilega búinn að bæta mér á póstlistann sinn og ég fæ vikulega send frá honum kostaboð um að kaupa sveppi, þurrkaða, frysta eða saltaða. Mr. Wang býður upp á einar fjörutíu mismunandi sveppategundir á góðu verði sem reyndar fylgir ekki með tilboðinu en örugglega fjölbreytilegt því að eins og hann segir: ,,We cater for high, middle and low quantity requests from our customers; all is possible." Gallinn er að Mr. Wang og svepparæktin hans er í Yunnan í Kína; fullseint að panta þaðan ef mig vantar sveppi í jólasósuna með dádýrinu eða kjúklingalifrarkæfuna á Þorlák. Því miður, þar sem Mr. Wang býður upp á ,,free gastronomical knowledge" í kaupbæti.