Mér skilst að Hringiðan sé búin að sjá að sér og vilji ekki lengur láta mig vinna hjá Flögu. En það kemur væntanlega í ljós þegar ég kem heim í dag. Ef ég kemst þá inn, ég gleymdi lyklunum og þegar ég hringdi í efnafræðistúdentinn til að spyrja hvenær hann kæmi heim hvæsti hann ,,ég er í tíma!" og ég þorði ekki annað en leggja á án þess að spyrja.
Ég flúði úr eldhúsinu áðan. Þar er verið að fremja hryðjuverk á kjúklingum. Ég er of mikil húsmóðir í mér til að geta horft upp á svoleiðis. Þegar ég elda mat fyrir myndatökur er hægt að borða hann á eftir, allavega í 99% tilvika.