Það kemur mér ekkert á óvart að ég skuli vera Krúsjoff ...
Which Soviet Leader are you? go to:the quiz!
Ég hef alltaf haldið pínulítið upp á Krúsa. Líka þótt hann mölvaði með látum fína fundarhamarinn sem Íslendingar gáfu Sameinuðu þjóðunum og yrði að berja í borðið með skónum. Hann fékk líka á baukinn fyrir það, var það ekki?
Þegar hann kom heim til Nínu
hún tók í lurg á Nikita
fyrir að skemma skóna fínu
og skíta út sparisokkana.