Bara í tilefni af fyrri yfirlýsingum: Þótt ég hafi breytt um nafn á síðunni þýðir það ekki að ég ætli að fara að setja hér inn berrassa- og tippamyndir. Ég komst bara að þeirri niðurstöðu að ég væri ekki nógu ánægð með hitt.
Núverandi nafn er ákveðið pólitískt steitment. Og ekki eyðileggja það með því að benda á að ég sé með tvo ofna í eldhúsinu og þetta ætti því að vera ,,ofnana sína".