Sódóma, Gómorra og Evrópusambandið
Það er prédikari á Omega að segja að heimskreppan sé hommadýrkun og guðleysi Evrópusambandins að kenna. Eða eitthvað í þá áttina. Og stefni okkur beint í Sódómu og Gómorru. Ef ég væri ekki búin að vera þeirrar skoðunar síðustu 15 árin eða svo að við ættum að ganga í Evrópusambandið við fyrsta tækifæri hefði hann allavega sannfært mig um það með þessu. Sódóma og Gómorra er fjandakornið ekki mikið verri en Ísland akkúrat núna. Og sennilega meira fjör.