Hver á hvað?
Hvernig er annars með Birtíng og þar með talið DV - er það inni í Rauðsólardæminu hans Jóns Ásgeirs eða ekki? Skiptir reyndar líklega ekki máli því að Stoðir Invest eiga Birtíng og Jón Ásgeir á Stoðir að mestu (nema fyrirtækið er í greiðslustöðvun ...) - æi, ég er annars löngu hætt að botna í þessu og vita hver á hvað og hvað er hvurs og hver er farinn á hausinn og allt það.
Ég er aftur á móti svo heppin að vinna hjá fyrirtæki sem er fjölskyldufyrirtæki að hálfu. Hinn helmingurinn (Mál og menning) á sig sjálfur og ég hef nú aldrei skilið alveg hvernig það virkar - en það hefur gengið hingað til.