Þú ert eins og ...
Ég hitti mann í Forlagspartíinu í gær sem líkti mér við Britney Spears. Hann var reyndar ekki að meina að við værum líkar í útliti, heldur að það væri hægt að fylgjast með ferli mínum í fjölmiðlum. Ókei, má vera.
En í dag sagði mamma að ég væri að verða eins og Elinborg skáldkona Lárusdóttir. Og hún var að meina útlitið, held ég.
Við hverja ætli mér verði svo líkt næst?