(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

8.11.08

Egg til ýmissa nota



Ég mætti á Austurvðll í dag en stoppaði reyndar stutt því ég hafði mælt mér mót við eldra barnabarnið í bænum og hún reyndist sannarlega ekki klædd fyrir neinar mótmælastöður. Missti af eggjakasti en sá reykspól. Hvorugt höfðar sérstaklega til mín, eggjakastið þó enn síður.

Svo að við fórum heim og steiktum ameríska kleinuhringi. Með fjórum eggjum. Fengum 28 feita kleinuhringi og erum frekar saddar. (Nei, þeir eru hreint ekki allir búnir.)

Uppskriftin er hér.


Amerískir kleinuhringir


200 ml mjólk eða vatn
1 pakki þurrger
3 msk sykur
4 egg
100 g lint smjör (eða bráðið)
bragðefni eftir smekk (við notuðum romm, mætti vera vanilludropar, rifinn sítrónubörkur eða annað)
rúmlega 1 kg hveiti
steikingarfeiti, þarf að vera 4-5 cm djúp í pottinum


Vökvinn velgdur þar til hann er nálægt 37°C og hellt í skál. Gerið sett út í ásamt 1-2 tsk af sykri og látið standa þar til gerið er farið að freyða. Þá er afgangurinn af sykrinum settur út í ásamt eggjum, smjöri, bragðefni og hluta af hveitinu. Hrært vel og meira hveiti bætt út í smátt og smátt, þar til deigið er vel hnoðunarhæft og klessist ekki við hendur en er þó fremur lint. Hnoðað vel, mótað í kúlu, sett í hveitistráða skál og látið lyfta sér við stofuhita í 30-45 mínútur. Þá er það slegið niður og flatt út í 1 cm þykkt, eða tæplega það. Hringir stungnir úr því og afskurðinum svo hnoðað saman í kúlu sem er flött út og fleiri hringir stungnir út - það ættu að verða u.þ.b. 14-18 hringir úr deiginu. Raðað á bökunarpappírsörk og látnir lyfta sér á meðan feitin er hituð. Þegar hún er 180-190°C eru kleinuhringirnir settir gætilega út í, 3-5 í senn eftir stærð steikingarpottsins, og steiktir í 1 1/2-2 mínútur á hvorri hlið (þurfa reyndar oftast heldur styttri tíma þegar búið er að snúa þeim). Teknir upp með gataspaða og látið renna af þeim á bökunarpappír. Bestir volgir og þá kannski með flórsykri sigtuðum yfir, eða þeir eru látnir kólna og þykkum glassúr dreypt yfir. Þeir eru samt alltaf langbestir nýsteiktir.

|