Tímaskyn
Getur verið að það sé bara sléttur mánuður síðan ég var úti á Ítalíu, í rútu á leið til Siena, og var að fá óljósar fréttir í SMS-um af bankahruni og hryðjuverkalögum og öllu klabbinu ... ? Mér finnst vera hálft ár síðan. Minnst.
Svo rifjaðist upp fyrir mér að í dag eru einmitt 28 ár síðan ég gifti mig. Það var líka föstudagur. Maðurinn sem ég bjó með var að landa loðnu, hringdi heim í hádeginu og ég sagði honum að hann þyrfti að koma heim og fara í bað því að við ætluðum að gifta okkur klukkan fjögur.
Mér finnst vera hundrað ár síðan. Minnst.