Strætómenning og símavændi
Strætóspjaldabókakynning Forlagsins er alveg að svínvirka, sé ég. Áðan kom maður inn í strætó, settist, þreif spjaldið fyrir framan sig og sökkti sér ofan í það. Og las það allt.
Og þetta var sko ekki símavændisbókin (ég hef nú séð ýmsa lesa það spjald heldur laumulega), heldur hreinlega sjálfur Kafka.