Sænski flagarinn og heimilisstörfin
Ég prentaði myndina hér fyrir neðan út og festi hana upp á vegg fyrir ofan skrifborðið mitt. Þar er núna ég og JPV við grillið, ég og Tony Bourdain á barnum á Nordica, Sean Connery á rauðu bleyjunni, eldra barnabarnið í fermingarkjól, einum spariskó og einum íþróttaskó, yngra barnabarnið í kokkagír með soðningu og kartöflur og fótboltalið Víkings (8. flokkur karla). Stefnir í að verða sérlega glæsilegur veggur - ég er samt að hugsa um að bæta við mynd af einkasyninum þar sem hann lítur út eins og miðaldra sænskur flagari um 1975. Hún yrði svona punkturinn yfir i-ið og örugglega tilefni ýmissa heilabrota fyrir kvöldsölufólkið. (Hann er þessi í rifflaflauelsjakkanum).
Ég sé núna að það eru stór mistök að hafa tekið sunnudaginn (og Silfur Egils) í að slátra hreinaþvottarhrúgunni með straujárninu. Annars gæti ég núna straujað á meðan Eurovision er. Held það væri eina leiðin til að geta haft kveikt á sjónvarpinu.
Eða ekki. Eða ég meina - hvers vegna ætti ég annars að vilja hafa kveikt á þessum ósköpum ... ?