Ending í útgáfubransanum
Ég fór á aðalfund Félags bókaútgefenda í gær og á eftir í mat á Holtinu og tilheyrandi öldrykkju fram á nótt. Er samt bara nokkuð spræk núna í morgunsárið, miðað við aldur og fyrri störf ...
Talandi um aldur: Á fundinum var meðal annars verið að kveðja Arnbjörn í Setbergi, sem var að ganga úr stjórn eftir 54 ára samfellda setu - og geri aðrir betur. Hann var semsagt kominn í stjórnina áður en ég fæddist og er búinn að gefa út bækur í 56 ár.
Mér finnst ég stundum orðin gömul í hettunni og þegar ég byrjaði að vinna hjá Iðunni við reikningaútskrift og fleira var til dæmis engin tölva þar, ég þurfti fyrst í stað að reikna allar pantanir út á reiknivél (strimilvél, en reyndar rafknúna) og vélrita síðan reikningana. Flest handrit voru send í prentsmiðju til setningar, eða til þartilhafðra kvenna úti í bæ. En Arnbjörn (sem er prentari) lærði að handsetja, nokkurn veginn eins og Gutenberg sjálfur gerði.
Ég veit ekki hvað ég á eftir að vera lengi í þessum bransa en það verða engin 56 ár. Ég er samt núna að vinna hjá þriðju kynslóð sömu fjölskyldu.