Ekkifrétt
Slagsmál á Skagaströnd, er fyrirsögn á mbl.is. Einhverntíma hefði það nú ekki þótt blaðafrétt að tveir Skaggar væru að slást.
Ég var einu sinni lamin á balli í Miðgarði á mínum sokkabandsárum og náttúrlega af Skagstrendingi. En hann hafði að vísu alls ekkert ætlað að berja mig, heldur manninn sem stóð við hliðina á mér. Svo að það telst líklega ekki með. Enda stórsá ekkert á mér.