Almennilegur læknir
,,... svona unga konu eins og þig," sagði læknirinn sem ég var hjá áðan. Og nei, hann var ekki ævaforn sjálfur, ég hefði þvert á móti getað verið mamma hans.
Svona eiga læknar að vera. Bjargaði alveg deginum.
Alveg burtséð frá slitgigt, stirðleika, háþrýstingi, mæði, bjúg og öðrum aldurs- (og vaxtarlags-)kvillum sem hrjá mig.