Við mæðginin
Við einkasonurinn sátum lengi dags í góða veðrinu, fyrst á Jómfrúnni, svo á Kaffi París, og ræddum kvikmyndir, lifrarkæfu, geðheilsu, femínista, blettaskalla, Svía, klofhárarakstur, mótorhjól, vöfflujárn, börn, dramadrottningar, sveppatínslustafi, brjóstastærð (mína), skeggvöxt (hans), Aspergerheilkenni, súkkulaðitertur og fleira sem mæður ræða við syni sína.
Og er þá fátt eitt talið af umræðuefnum okkar.