Öflug hakkavél
Dæmi um hvað hugsun mín er matarmiðuð:
Ég sit hér í vinnunni og er að fletta í gegnum bláprent af bók þar sem er mikið af teikningum af ýmsum tækjum. Fór að virða eitt þeirra fyrir mér.
-Þetta er svolítið óvenjuleg hakkavél, hugsaði ég.
Svo las ég textann. Þetta var ekki hakkavél. Þetta var kjarnorkuofn.
Það er samt ákveðinn svipur ...