Knattspyrnukappinn
Ég gleymdi annars að geta þess áðan að gagnlega barnið á afmæli í dag; hún er aldarþriðjungs gömul. Það eru samt ekki aðalviðburðurinn á því heimili. Ónei, því að í morgun lék Sauðargæran sína fyrstu alvöru fótboltaleiki; 8. flokkur Víkings fór í Hafnarfjörðinn og spilaði við FH. Fjögur lið frá hvorum. Sauðargæran spilaði tvo leiki og liðið hans vann báða; hann skoraði eina markið í öðrum leiknum, enda hafði hann lofað móður sinni marki í afmælisgjöf. Og maður stendur við slík loforð.
Drengurinn er mjög stoltur af afrekum sínum.