Bestu kökurnar
Ég fletti í gegnum nýtt kökublað Gestgjafans. Sá að þar er þáttur sem heitir Slógu í gegn. 10 bestu kökur Gesgjafans, tekið úr eldri Gestgjafablöðum. Allt í lagi með það. Nema ég á fimm af þessum kökum þótt mitt nafn komi hvergi nokkurs staðar fram í þættinum. Ekkert um hver þessi ,,ég" er sem eitthvað er að tjá sig í innganginum að sumum uppskriftunum. (Það er hvergi minnst á ljósmyndarann heldur, merkilegt nokk.)
Nú bíð ég bara spennt eftir að sjá hvort ég fæ borgað fyrir endurbirtinguna á uppskriftunum. Eða skyldi það gleymast líka?