Lyngháls
Nú hefði ég sagt upp hjá Birtíngi í dag ef ég væri ekki löngu búin að því.
Lyngháls, kommon.
Búið að segja við mig í allt sumar: -Þér er alveg óhætt að halda áfram hérna, við erum að flytja niður í bæ, þú sleppur við strætóferðir ...
Einmitt. Það þarf tvo strætóa til að komast upp á Lyngháls í staðinn fyrir einn.
En ég þarf víst að fara ekki seinna en á morgun og ná í bækurnar mínar. Er einhver lipur maður/kona á bíl sem nennir að skutla mér? Bíllinn þarf að rúma þónokkuð marga bókakassa.