Stóreignamanneskja
Ég er búin að komast að því af hverju ég á mest.
Eru það matreiðslubækur?
Nei, merkilegt nokk.
Er það eldhúsdót og dippidúttar?
Nehei.
Það eru herðatré.
Ég held að ég hljóti að hafa verið þeirrar skoðunar í hvert einasta sinn sem ég hef átt leið í Rúmfatalagerinn og aðrar slíkar búðir undanfarin mörg ár að það hlyti að vanta herðatré og kippt nokkrum með mér. Það er eina hugsanlega skýringin á öllum þessum herðatrjám sem ég er að flytja á milli húsa þessa dagana.