Líf í kössum
Mér er kalt.
Gamla skrifstofan mín var ekki gallalaus en mér var aldrei kalt þar.
Hún stendur enn auð. Skil nú ekki af hverju lá svona á að ég flytti mig ...
Whatever. Þetta eru nú bara rúmar þrjár vikur í viðbót sem ég þarf að dúsa hér. Kem bara með peysu á morgun. Eða kannski á ég hlýja peysu hérna ofan í kassa. Ef ég myndi nú hvaða kassa ...
Líf mitt verður líklega í kössum næstu mánuði. Hér uppfrá er mestallt mitt dót komið í kassa og bíður flutnings. Ég er reyndar ekki byrjuð að setja ofan í kassa heima en ég er þó komin með slatta af kössum.
Er að hugsa um að losa mig við slatta af bókum til að fækka kössunum. Ekki matreiðslubókum samt.