Framtíðarsýn Sauðargærunnar
Sauðargæran við foreldra sína í gær (á heimleið úr Kringlunni):
-Þegar konan er búin að fæða barn ætla ég oft að fara með hann á McDonalds.
Eftir nokkrar umræður kom fram að þessi yfirlýsing þýddi ,,þegar ég er orðinn pabbi ætla ég oft með strákinn minn á McDonalds".
Úr henni má líka lesa það að hann er karlremba með smekk fyrir ruslfæði. Veit þó jafnframt að ekkert þýðir að nauða í foreldrunum að fara með sig á McDonalds (ömmur eru vænlegri til slíks) og ætlar að gera betur sjálfur í barnauppeldi þegar þar að kemur. Gerir sér líka grein fyrir staðreyndum lífsins og að hlutirnir þurfa að gerast í réttri röð.