Það var verið að spyrja mig hvort ég mundi hætta að blogga hér fyrst ég er komin með matarblogg á Gestgjafavefnum. Nei, það er alls ekki meiningin - það er sannarlega ekki allt sem ég skrifa um hér sem á erindi þangað. Og það kemur jú fyrir að ég hugsa um eitthvað annað en mat.
Matarspjallið á Gestgjafavefnum (sem er opið og allir geta lesið) verður semsagt um mat og hvers kyns matartengt efni. Það þýðir þó ekki að ég sé steinhætt að minnast á mat hér - það gæti ég varla - en það verður kannski eitthvað minna. Sumt mun ég skrifa um á báðum stöðum en kannski út frá aðeins mismunandi sjónarhorni. Ég ætla allavega að gera tilraun með það.
Ef þið eruð með fyrirspurnir um eitthvað matartengt er allt í lagi að koma með þær hér eins og verið hefur en ég mundi þó frekar vilja sjá þær á Gestgjafavefnum - það er hægt að setja þær þar inn á þremur stöðum, á spjallborðinu, í Spurt og svarað eða í athugasemdakerfinu við Matarspjallið (það er þessa stundina aðeins fyrir áskrifendur en því verður breytt).
En ég er alltsvo ekkert að hætta hér.