(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

29.9.05

Þá er það frá.

Ég ætlaði að fara að skrifa ,,og svo ætla ég ekki að hugsa meira um mat fyrr en í fyrsta lagi á morgun", en svo rann upp fyrir mér að ég er svöng.

Ansans. Verð víst að gera eitthvað í því. Gengur ekki að matargúrúið horfalli. (Nei, ókei, ég veit að það er lítil hætta á því, ég hef á töluverðan forða að ganga, en samt ...) Best að skreppa út í búð áður en House byrjar ... er ekki örugglega House í sjónvarpinu á eftir? Er ekki örugglega fimmtudagur? Eða er House kannski ekki á fimmtudagskvöldum ... ég get svarið það, ég er orðin rugluð í þessu öllu saman.

Æ, já, og vefurinn sem ég er alltaf að tuða um er www.gestgjafinn.is. Ef ég skyldi hafa gleymt að nefna það.

|