Ég er að mæta í meira tilstand í kvöld en eins og ég sagði hér í gær leiðist mér það heldur. Þó skömminni skárra núna því að nú er ég ekki í neinu hlutverki, nema bara sem gestur og blaðamaður. Ég er nefnilega að fara í Bleika boðið, hátíðarkvöldverð til styrktar baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Sem er náttúrlega hið besta mál og svo verður væntanlega eitthvað verulega gott að borða líka.
Mér líst allavega ágætlega á matseðilinn.