Sauðargæran hefur mikið álit á Gísla ljósmyndara Gestgjafans eftir myndatökusessjón þeirra um daginn. Hann hafði einhverjar spurnir af því að Gísli hefði farið norður um helgina að skjóta rjúpur og þegar hann kom hér í fyrrakvöld og var boðið upp á kalkúna að borða var vitavonlaust að fá hann ofan af því að Gísli hefði skotið stóra fuglinn.
Í kvöld voru aftur á móti rjúpur á borðum - reyndar skoskar rjúpur, sem eru óttalegt svindl. Drengnum þóttu litlu fuglarnir fyndnir en datt ekki í hug að bendla Gísla við svona píslir.