(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

23.10.05

Gísli Marteinn tengdasonurinn sem allar mæður óska sér???? Sko, þetta er ábyggilega hinn ljúfasti drengur en ég veit ekki ... Ég er líka bara alveg mjög sátt við núverandi tengdason minn.

Dóttursonurinn er kominn með skarlatssótt. Verður án efa orðinn grillrauður á morgun. Mig minnir annars að þegar ég var ung hafi verið talað um skarlatssótt sem nánast útdauðan en stórhættulegan sjúkdóm og mér varð þess vegna um og ó þegar efnafræðistúdentinn fékk hana á sínum tíma. Ég missti hins vegar af því að hjúkra honum því að hann var þá hjá ömmu sinni og afa á Króknum og blessaði mikið svefnsófann með grófa áklæðinu, hann var víst góður við kláðanum.

|