Ég er með kalkúna í ofninum en þegar hann var kominn vel af stað kom í ljós að það þarf að fresta myndatökunni í dag af óviðráðanlegum ástæðum. Maður myndar ekki dagsgamlan kalkúna og segir að hann sé nýsteiktur. Þannig að ég held bara kalkúnaboð í kvöld. Hringdi í Gunnu systur til að gá hvort hún væri enn í Höfðaborg. Hún reyndist vera á flugvellinum í Frankfurt á heimleið og var alveg til í að fá kalkúna í kvöldmatinn.
Nú þarf ég bara að redda öðru kvikindi til að steikja á morgun.