Akkúrat þegar ég er að drukkna í vinnu, þá þarf ég endilega að fá einhvern álitlegasta bókapakka sem ég hef fengið lengi. Sjá nánar um innihaldið á Gestgjafavefnum. Sjálfskaparvíti? Já, auðvitað.
Annars fletti ég upp í færslusafninu mínu af rælni og komst þá að því að einmitt þennan dag í fyrra var nákvæmlega sama ástand í vinnunni: Prentsmiðjuskil á kökublaðinu daginn eftir og allt í skralli. Nema ég hef greinilega verið í ívið betra skapi.
Og það hefur greinilega verið alveg eins mikið að gera hjá mér í fyrra.
Eins og ég hef áður sagt. Ég læri ekki af reynslunni.