Ég var að fletta DV áðan hér frammi, þar er listi yfir 100 spilltustu pólitísku stöðuveitingarnar. Áhugaverður listi að ýmsu leyti. En einhversstaðar neðan við miðbik listans er mynd af gömlum bekkjarbróður mínum sem er búinn að vera framkvæmdastjóri fjármáladeildar RÚV í nokkur ár og sagt að hann sé inngróinn sjálfstæðismaður. Aumingja Bangsi. Vont þykir honum örugglega að lenda á þessum lista, enn verra að vera kallaður inngróinn sjálfstæðismaður. Ég man ekki betur en hann hafi verið frekar ofarlega á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík norður síðast og hann hefur örugglega alltaf verið verulega inngróinn framsóknarmaður.