Mikið ofboðslega langar mig allt í einu í nýsteiktar kleinur.
Samt held ég að ég nenni ekki að steikja kleinur í kvöld. En þetta er ábyggilega eitthvert bakslag frá blessuðu kökublaðinu.
Nei, það er ekki farið frá okkur.
Ég er samt að hugsa um að halda mig við einhvers konar notalegheitamat í kvöld. Líklega kjöt í karríi. Eða kjötsúpu. Þarf á því að halda til að búa mig undir allar stórsteikurnar sem eru framundan.