Síminn er kominn í lag. Veit ekki hvaða fjandans tiktúrur voru í honum.
Ég er að skrifa matreiðslubók. Já, ég veit, aftur og nýbúin ...
Við Boltastelpan (sem gisti í nótt) fórum í Sandholtsbakarí í morgun, við förum gjarna á kaffihús á sunnudagsmorgnum þegar hún gistir. Pöntuðum fyrir sexhundruðogeitthvað og ég rétti fram þúsundkall.
-Ee ... sagði strákurinn sem afgreiddi. -Geturðu nokkuð borgað með korti? Við eigum ekki hundraðkalla ... né fimmtíukalla ... né tíkalla ...