Ég hringdi áðan í afmælisbarn dagsins. Hann kom sjálfur í símann og tjáði mér óðamála að hann hefði fengið riddarakastala í afmælisgjöf og það fylgdu honum riddarakallar og (hér lækkaði röddin niður í samsærislegt hvísl) riddaradreki sem opnar munninn og það kemur eldur!
Mér heyrðist á honum að hann væri farinn að sjá ýmsa kosti við afmælisdaga og litist bara vel á að vera fjögurra ára.